
Sjóflutningar eru einföld og þægileg leið til að senda varning á milli landa, sér í lagi þegar um stærri sendingar er að ræða. En til að viðunandi árangur náist, þarf að huga að ýmsum þáttum flutningaferlisins, svo sem: - Samhæfingu land- og sjóflutninga, bæði heima og erlendis
- Umsýslu, s.s.farmtryggingar, gerð farmbréfa og tollskjala.
- Réttri vörumeðferð á flutningstíma, s.s. hvað snertir umbúðir og merkingar
- Móttöku og dreifingu.
IceTransport hefur í samstarfi við erlenda aðila byggt upp öflugt flutninga- og þjónustunet um allan heim og stendur því vel að vígi, hvað allt þetta varðar. IceTransport annast einnig umpökkun og alla almenna umsýslu við sjóflutning, hvort sem varningurinn er sendur í heilgámum (FCL) eða sem lausavara (LCL). Af þeim sökum geta viðskiptavinir fyrirtækisins reitt sig á, að vörur þeirra fari frá sendanda og komi til viðtakanda eins örugglega og kostur er. |
|