Sjóflutningar eru einföld og þægileg leið til að senda varning á milli landa, sér í lagi þegar um stærri sendingar er að ræða. En til að viðunandi árangur náist, þarf að huga að ýmsum þáttum flutningaferlisins, svo sem:

  • Samhæfingu land- og sjóflutninga, bæði heima og erlendis
  • Umsýslu, s.s.farmtryggingar, gerð farmbréfa og tollskjala.
  • Réttri vörumeðferð á flutningstíma, s.s. hvað snertir umbúðir og merkingar
  • Móttöku og dreifingu.

IceTransport  hefur í samstarfi við erlenda aðila byggt upp öflugt flutninga- og þjónustunet um allan heim og stendur því vel að vígi, hvað allt þetta varðar. IceTransport annast einnig umpökkun og alla almenna umsýslu við sjóflutning, hvort sem varningurinn er sendur í heilgámum (FCL) eða sem lausavara (LCL). Af þeim sökum geta viðskiptavinir fyrirtækisins reitt sig á, að vörur þeirra fari frá sendanda og komi til viðtakanda eins örugglega og kostur er.

 

 

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...