Eitt af því, sem margir forsvarsmenn fyrirtækja vilja síst taka sér fyrir hendur er umsýsla  tollskjala, tollafgreiðsla og skyldar aðgerðir. Ekki nóg með, að af þessu hljótist mikið umstang, heldur tekur þetta ferli oft gríðarlegan tíma, sem má vissulega betur nýta í athafnir innan fyrirtækisins.

 

En fyrirtæki þurfa ekki að örvænta, því við í IceTransport tökum að okkur að annast slík mál fyrir viðskiptavini okkar. Við eigum í góðu samstarfi við Tollstjóraembættið og afgreiðum allar sendingar beintengt um svokallað SMT-kerfi, sem leiðir af sér mun fljótari afgreiðslu. Afrakstur þess, að eftirláta okkur tollafgreiðslu, eru m.a. eftirfarandi:

  • Þægindi
  • Öryggi
  • Fagmennska
  • Tímasparnaður
  • Hagræði
Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...