IceTransport hefur ætíð lagt metnað sinn í að bjóða viðskiptavinum sínum hraðar og öruggar vörusendingar. Fyrirtækið er í samstarfi við öll þau flugfélög, sem flytja vörur til og frá Íslandi, og hefur jafnframt yfir að ráða þéttu tenglaneti samstarfsaðila í helstu viðskiptalöndum. Það er því vel í stakk búið að tryggja viðskiptavinum sínum bestu flutningslausnina hverju sinni.
 
Við hjá IceTransport sjáum um að finna fljótvirkustu flutningsleiðina, annast nauðsynlega umsýslu og koma sendingunni á áfangastað á réttum tíma. Þannig tryggjum við, að þitt fyrirtæki geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum.
 

IceTransport er umboðsaðili FedEx á Íslandi. FedEx er stærsta hraðflutningafyrirtæki í heimi. Það ræður yfir um 140.000 starfsmönnum, víðsvegar um heiminn. Fyrirtækið þjónustar 375 flugvelli um allan heim og hefur yfir að ráða 674 flugvélum, yfir 42.000 vöruflutningabifreiðum og 55.000 miðstöðvum. FedEx flytur að meðaltali um 3,3 milljónir sendinga á degi hverjum. Í þessu ljósi geta viðskiptavinir IceTransports treyst því, að sendingar þeirra eru í góðum höndum.

 

.

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...