IceTransport fyrirtæki á traustum grunni Hjá IceTransport koma saman traustir og öflugir samstarfsaðilar í sjó- og flugfrakt. Reynslumikið starfsfólk leggur sig fram af heilum huga við að veita viðskiptavinum fyrirtækisins persónulega þjónustu á samkeppnishæfu verði. Hraðsendingar IceTransport hefur á að skipa þekktum merkjum í flutningaþjónustu. Þar má nefna FedEx, stærsta hraðflutningafyrirtæki heims. Fyrir tilstuðlan þessa öfluga samstarfsaðila Flugfrakt IceTransport hefur umboð fyrir svissneska flutningafyrirtækið Panalpina. Fyrirtæki þetta, sem stofnað var 1935, hefur jafnan sérhæft sig í flugfrakt, einkum á milli heimsálfa. Það starfrækir um 500 deildir í yfir 80 löndum og hefur þar að auki náið samstarf við sérhæfð fyrirtæki í 60 öðrum. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 14.000. Sjófrakt IceTransport er í samstarfi við sjóflutningamiðlarann Ziegler, sem býður fram öflugt flutninga- og þjónustunet um allan heim. IceTransport stendur því einnig vel að vígi, hvað allt þetta varðar. IceTransport annast einnig umpökkun og alla almenna umsýslu við sjóflutning, hvort sem varningurinn er sendur í heilgámum (FCL) eða sem lausavara (LCL). Af þeim sökum geta viðskiptavinir fyrirtækisins reitt sig á, að vörur þeirra fari frá sendanda og komi til viðtakanda eins örugglega og kostur er. Öll þjónusta IceTransport veita alla þjónustu sem tilheyrir vöruflutningi milli landa. Við sækjum vörur og komum þeim á réttan stað á réttum tíma, ásamt því að annast útfyllingu tollskjala og aðra umsýslu. Við finnum út bestu flutningsleiðina í samvinnu við umboðsaðila, sem staðsettir eru víðsvegar um heiminn.
OPNUNARTÍMI: Opnunartími hjá IceTransport, skrifstofa og vöruhús opið alla virka daga frá 08:30 - 16:30 Vaktsími: 8608170 Þér er velkomið að hafa samband við okkur hvort sem þú leitar ráða eða þarft svör við þeim spurningum sem þú hefur varðandi flutninginn. |


