FedEx pakkar:
Með pökkum þarf að fylla út FedEx farmbréf og útvegum við föstum viðskiptavinum þau forprentuð með nafni og heimilisfangi sendanda, ef óskað er. Á farmbréfinu þarf að koma fram nafn, heimilisfang og símanúmer móttakanda og rétt lýsing á vörunni. Reikningur skal fylgja í þríriti, þar sem fram koma upplýsingar um sendanda og móttakanda, vörulýsing, verð, stykkjafjöldi og þyngd. Einnig skal getið um framleiðsluland vöru og tilgang útflutnings (s.s. sölu, endursendingu, viðgerð, sýnishorn, gjöf o.s.frv.). Æskilegt er að FedEx númer sendingar sé líka á reikningnum. |  |
Sjá einnig: Farmbréf.
|