Afhendingartími

IceTransport leggur metnað sinn í, að flytja þína sendingu bæði fljótt og örugglega alla leið heim að dyrum. Við státum okkur af góðum árangri á þeim vettvangi, samkeppnishæfum verðum og afburða þjónustu. Til að undirstrika þessa áherslu okkar viljum við hér geta áætlaðs afhendingartíma til helstu staða í heiminum:

Til Bandaríkjanna:

Við hjá IceTransport bjóðum upp á þá einstöku þjónustu, að afhenda FedEx hraðsendingar fyrir kl. 10:30 næsta virka dag, nánast hvar sem er í Bandaríkjunum. Ef sending berst í okkar hendur fyrir hádegi á virkum degi, skilum við henni til móttakanda innan 24 klukkustunda.

Til Evrópu:

Miðað við sömu forsendur afhendum við FedEx hraðsendingar í hendur móttakenda á Norðurlöndum og í Vestur Evrópu á næsta virka degi, og til flestra ríkja Mið- og Austur-Evrópu á öðrum til þriðja degi. Nánari upplýsingar um afhendingu til einstakra landa eru veittar á skrifstofu IceTransport.


Til Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og Ástralíu:

Miðað við sömu forsendur afhendum við FedEx hraðsendingar í hendur móttakenda í Suður-Ameríku, Ástralíu, Asíu og Afríku á öðrum til þriðja degi. Nánari upplýsingar um afhendingu til einstakra landa eru veittar á skrifstofu IceTransport.

Sjá einnig; Hraðsendingar

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...