Efnahagur Íslendinga hefur á síðustu 100 árum grundvallast á útflutningi innlendrar framleiðslu. Á þeim grunni hefur þjóð vor tekið stökkið mikla úr fátækt í bjargálnir. Löngum voru sjávarafurðir helsta útflutningsvara landsmanna, en á síðustu áratugum hefur hlutur margs konar iðnvarnings sífellt vaxið. Nú er svo komið, að til dæmis íslenskt skyr fæst í kjörbúðum í Bandaríkjunum.
En hvernig má það vera, að slíkur varningur kemst í söluhæfu ástandi heimsálfa á milli? Svarið má meðal annars finna í bættum alþjóðaflutningum. Það gildir einu hvaða varningur það er, sem þú vilt koma á markað erlendis, starfsfólk IceTransports getur hjálpað þér að finna bestu og hagkvæmustu lausnina.
Við í IceTransport tökum að okkur að sækja varninginn til þín og flytja hann á réttan stað, á réttum tíma, heim að dyrum móttakanda. Jafnframt veitum við viðskiptavinum okkar alla hugsanlega útflutningsþjónustu, Má þar nefna:
Sjá nánar: Hraðsendingar Sjóflutningar Flugflutningar. Tollskjalagerð, Akstursþjónusta
|


