Íslendingar eru háðir vöruinnflutningi framar flestum öðrum. Á hverju ári flytjum við mun meira inn en út. En samhliða því er vöruverð á innfluttum vörum tiltölulega hátt. Þar kemur margt til sögunnar, en meðal þess, sem endursölufyrirtæki hér á landi þurfa að hafa í huga er, að velja hagkvæmustu flutningaleiðina til landsins. Þar kemur IceTransport til sögunnar.

 

Reynsla okkar í IceTransport gefur tilefni til að ætla, að íslensk fyrirtæki gætu sparað sér háar upphæðir árlega með því að eftirláta fagmönnum að skipuleggja og annast flutning, pökkun, umsýslu og aðra þætti vöruinnflutnings. Þannig má lækka heildar innkaupsverð, bæta samkeppnisstöðu og auka hagnað umrædds fyrirtækis.

 

Við í IceTransport tökum að okkur, í samstarfi við erlenda aðila, að sækja varninginn til framleiðanda og flytja hann heim að dyrum móttakanda.  Við erum fullviss um, að geta þannig sparað viðskiptavinum okkar útgjöld, tíma og fyrirhöfn.Jafnframt veitum við viðskiptavinum okkar alla hugsanlega innflutningsþjónustu, Má þar nefna:

  • alla almenna umsýslu, svo sem tollskjalagerð
  • veitum upplýsingar um sendingarferlið
  • sækjum vöruna og ökum henni á áfangastað

 

Sjá nánar: Hraðsendingar  Sjóflutningar  Flugflutningar. Tollskjalagerð, Akstursþjónusta

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...