Verkefnaflutningar

 

Á undanförnum árum hefur það færst í vöxt að innlend og erlend fyrirtæki ráðist í viðamikil verkefni, sem kalla á umfangsmikla flutninga. Þar er jafnan um að ræða tímabundinn innflutning á tækjum og búnaði, svo sem til tónleikahalds eða upptökur á kvikmyndum eða auglýsingum. Þegar svo stendur á skiptir hröð afgreiðsla og öryggi höfuðmáli.

IceTransport hefur sérstaka ánægju af því, að sérhæfa sig í slíkum flutningum og hefur reynslan sýnt, að fyrirtækinu er treystandi til að koma búnaði til menningariðkunar heilu og höldnu til landsins og aftur til hinna erlendu eiganda.

Meðal verkefna má nefna flutning á búnaði vegna upptöku James Bond myndarinnar Die Another Day, listaverkum Claude Monet og hljómleikabúnaði fyrir fjölda erlendra listamanna, sem heiðrað hafa Íslendinga með nærveru sinni.

 

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...