Viðskiptaskilmálar

Hér má nálgast viðskiptaskilmála IceTransport  ehf - Umsókn um reikningsviðskipti - Tolla umboð á pdf formi.

 

Viðskiptaskilmálar IceTransport_ehf.pdf

Umsókn_um_reikningsviðskipti.pdf

Tolla_-_Umbo_.pdf

 

Óski viðskiptamaður eftir þjónustu IceTransport. 

Ber honum að virða og samþykkja viðskiptaskilmála fyrirtækisins.  Viðskiptamanni er einnig ljóst að IceTransport geti ekki veitt umbeðna þjónustu ef viðskiptamaður veitir ekki réttar eða fullnægjandi upplýsingar.  Skilmálunum er ætlað að undirstrika að viðskiptamaður hafi gert sér grein fyrir eðli þeirra þjónustu sem falla undir skilmálanna .  Einnig hvaða fyrirvarar eru gerðir. 
Viðskiptamaður telst hafa samþykkt skilmála þessa með undirritun viðskiptaskilmála fyrirtækisins. Viðskiptamaður veitir jafnframt samþykki sitt fyrir viðskiptaskilmálunum með  eyðublaði fyrir reikningsviðskipti.  Gengisálag er á öllum sendingum.  Álagið er breytilegt en að jafnaði um 5%.


Umboð vegna tollafgreiðslu

Framvegis þarf að skila inn umboði vegna gjaldfærslu á aðflutningsgjöldum.Um er að ræða gjaldfærslu fyrir  aðflutningsgjöldum viðskiptavina gagnvart tollayfirvöldum.  IceTransport hefur heimild til tollmiðlunar.  Starfsmönnum er heimilt að gjaldfæra aðflutningsgjöld viðskiptavina á kennitölur fyrirtækjanna sem eiga viðskipti við IceTransport.  Viðskiptavinir IceTransport verða að veita skriflegt samþykki á tolla-umboði vegna gjaldfærslu á aðflutningsgjöldum.

Hægt er að prenta út ofangreint tolla-umboð til undirritunar. Senda þarf umboðið tilbaka í gegnum faxnúmer.:  4120100 eða bréfleiðis.

Nánari upplýsingar varðandi skilmálana eru veittar í síma 4120120.  Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið  icetransport@icetransport.is 

Skrifstofa og vöruhús IceTransport eru lokuð fimmtudaginn 17. Júní . Venjulegur opnunartími föstudaginn 18....
Lokað hjá IceTransport á annan í hvítasunnu. Venjulegur opnunartími gildir aðra virka daga 08:30 –...