
Flugflutningar eru einföld og þægileg leið fyrir fyrirtæki að senda varning á milli landa, sér í lagi þegar afgreiða þarf vöru á tilteknum tíma. Margvíslegt hagræði getur hlotist af því, að nýta sér þessa þjónustu, svo sem: - Tímasparnaður
- Varningur kemst fyrr í sölu
- Afgreiðslutími söluvarnings styttist og sölulíkur aukast
- Ánægðir viðskiptavinir
IceTransport hefur í samstarfi við erlenda aðila byggt upp öflugt flutninga- og þjónustunet um allan heim. Það tryggir meðal annars, að viðskiptavinir fyrirtækisins geta reitt sig á, að vörur þeirra fari frá sendanda og komi til viðtakanda á réttum tíma.

IceTransport hefur umboð fyrir svissneska flutningafyrirtækið Panalpina. Panalpina, sem stofnað var 1935, hefur jafnan sérhæft sig í langflutningum, sér í lagi á milli heimsálfa. Fyrirtækið starfrækir um 500 deildir í yfir 80 löndum og hefur þar að auki náið samstarf við sérhæfð fyrirtæki í 60 öðrum. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 14.000. Við í IceTransport höfum góða reynslu af samstarfinu við Panalpina og geta viðskiptavinir okkar treyst því að sending þeirra er í góðum höndum. Sjá einnig; Hraðsendingar, FedEx. | |
|